Fara beint í efnið
Stafrænt Ísland Forsíða

Stafrænt Ísland

Fréttabréf janúar 2024

23. janúar 2024

Fréttabréf Stafræns Íslands janúar 2024.

WSA Shortlisted 2023 rgb

Stafrænt Ísland tilnefnt til alþjóðlegra verðlauna!

Stafrænt Ísland er tilnefnt í flokki sem snýr að opinberri stjórnsýslu og þátttöku borgara e. Government & Citizen Engagement. WSA (World Summit Awards) verðlauna árlega verkefni sem stuðla að stafrænni nýsköpun í þágu samfélagslegra umbóta. Verðlaun eru veitt í átta flokkum en Stafrænt Ísland er tilnefnt í flokki sem snýr að opinberri stjórnsýslu og þátttöku borgara e. Government & Citizen Engagement.

WSA hefur í tvo áratugi verðlaunað verðug verkefni en aðilar í 182 löndum hafa fengið þennan gæðastimpil. WSA var stofnað fyrir tilstilli Sameinuðu þjóðanna árið 2003 og hefur það markmið að bæta aðgengi allra að stafrænum heimi. WSA metur verkefni út frá áhrifum á nærsamfélagið og hvernig þau styðja við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.

Tilnefningin er mikill heiður fyrir starfsfólk Stafræns Íslands, starfsfólk stofnana, samstarfsfyrirtæki og alls Ísland.is samfélagsins. Um 250 manns  taka á einn eða annan hátt þátt í þessu viðamikla verkefni og ánægjulegt að tekið sé eftir störfum þeirra á alþjóðlegum vettvangi. 

Lesa nánar um WSA


2023 í tölumNotkun á kjarnaþjónustum Ísland.is jókst til muna á árinu í samanburði við árið 2022 

Staðan: 

  • Ísland.is: Vefurinn fékk um 18 milljón flettingar sem er aukning um tæplega 8 milljónir milli ára.

  • 25 stofnanir og verkefni hafa flutt vefsíður sínar inn á Ísland.is.

  • Stafræna pósthólfið: 9 milljónir skjala send á árinu og þar af um 2 milljónir skjala lesin. 

  • Umsóknarkerfi: 31 stofnun nýtir umsóknarkerfið og 165.385 umsóknir fóru í gegnum kerfið á árinu.

  • Mínar síður: Að meðaltali eru um 200 þúsund innskráningar en stærsti mánuður ársins var nóvember.

  • Ísland.is appið: Um 140 þúsund hafa sett upp appið og um 30 þúsund nota appið að meðaltali á mánuði.

  • [object Object]

91% skráð kílómetragjaldið

Þann 20. janúar rann út frestur til að skrá kílómetrastöðu rafmagns-, vetnis- og tengiltvinnbíla. Við lok þeirrar skráningar höfðu 46.610 ökutæki skráð eða um 91% heildarinnar og komu þannig í veg fyrir að fá á sig áætlað kílómetragjald.

Lesa frétt um kílómetraskráningu


Rafbílastyrkur 

Fyrsta umsókn um rafbílastyrk fór í gegnum umsóknarkerfi Ísland.is í liðinni viku. Umsóknarferlið var að fullu sjálfvirkt allt frá umsókn til greiðslu.

Umsókn um rafbílastyrk


Uppgjör dánarbúa stafræn

Öll ferli tengd skiptingu dánarbúa eru komin á stafrænt form og eru aðgengileg á Ísland.is

  • Búsetuleyfi 29%

  • Einkaskipti 50%

  • Opinber skipti 7%

  • Eignalaus bú 14%

Lesa nánar um erfðamál


Stafrænir sýslumenn

Á árinu 2023 settu Sýslumenn í samstarfi við okkur samtals 46 verkefni í loftið á Ísland.is. Það er tvöföldun frá árinu 2022 þegar 23 verkefni fóru í loftið. Verkefnin eru fjölbreytt eða allt frá birtingu gagna á Ísland.is yfir í umsóknir og svo flóknari verkefni eins og umsókn um vegabréf, P-kort og dánarbú.


Forsetakosningar 2024 

Kosning.is er nú að finna á Ísland.is en þar er að finna allar mikilvægar upplýsingar um komandi kosningar. Næstu kosningar fara fram 1.júní en þá kjósa Íslendingar sér forseta. 

Nánar um forsetakosningar 2024


Í vinnslu hjá Stafrænu Íslandi:

  • Eigendaskipti vinnuvéla og tækja

  • Endurnýjun ökuréttinda

  • Mínar síður: Fjármál, hreyfingar á tímabilinu

  • Mínar síður: Greiðsluáætlun Tryggingastofnunar

  • Mínar síður: Hugverkaréttindin mín

  • Mínar síður: Námsyfirlit úr INNU

  • Mínar síður: Starfsleyfi heilbrigðisstarfsfólks

  • Rafræn erfðafjárskýrsla

  • Rafræn þinglýsing á kaupsamningum fasteigna

  • Skírteini: Veiðikortið

  • Tilkynning um vinnuslys

  • Umsón um dvalarleyfi

  • Umsókn um endurnýjun dvalarleyfa ítrun

  • Umsókn um ellilífeyri

  • Umsókn um háskóla

  • Umsókn um ríkisborgararétt ítrun

  • Umsókn um sannvottun

  • Upplýsingavefur um háskólanám á Íslandi

  • Vefur Ríkissaksóknara

  • Vefur Tryggingastofnunar á Ísland.is

  • Vefur Vinnueftirlitsins á Ísland.is