Fara beint í efnið

Stjórn

Forstjóri Sjúkratrygginga er Sigurður H. Helgason.

Hann er skipaður af heilbrigðisráðherra til 5 ára.

Stjórn Sjúkratrygginga er skipuð af heilbrigðisráðherra.

Aðalmenn

  • Eygló Harðardóttir, fyrrverandi ráðherra, formaður

  • Guðmundur Magnússon, rekstrarverkfræðingur, varaformaður

  • Gunnar Sær Ragnarsson, lögfræðingur

  • Jónína Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi

  • Ólafía B. Rafnsdóttir, ráðgjafi

Varamenn

  • Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður

  • Kristín Hermannsdóttir, viðskiptafræðingur


Skipun stjórnar

Ráðherra skipar fimm menn í stjórn sjúkratryggingastofnunarinnar og skal einn skipaður formaður stjórnar og annar varaformaður. Skipaðir skulu jafnmargir menn til vara. Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda og stýrir þeim og situr forstjóri fundi stjórnarinnar með málfrelsi og tillögurétti. Ráðherra setur stjórninni erindisbréf og ákveður þóknun til stjórnarmanna sem skal greidd af rekstrarfé stofnunarinnar.

Stjórn sjúkratryggingastofnunarinnar skal staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Skal stjórnin hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.

Formaður stjórnar sjúkratryggingastofnunarinnar skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi hennar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur er ekki í samræmi við fjárlög.