Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Skipurit og framkvæmdastjórn

Skipurit Sjúkratrygginga

Núverandi skipurit tók gildi 01.04.2026

Skipurit Sjúkratryggingar frá 16.06.2026

Framkvæmdastjórn Sjúkratrygginga

Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga

Sigurður Helgi Helgason er forstjóri Sjúkratrygginga en hann hefur gegnt stöðu forstjóra frá árinu 2023. Hann er með meistaragráðu í stjórnsýslu frá Roskilde Universitet með sérhæfingu í heilsuhagfræði og stjórnun heilbrigðisþjónustu. Sigurður hefur víðtæka reynslu úr opinberri stjórnsýslu og alþjóðlegu samstarfi. Hann stýrði áður skrifstofu stjórnunar og umbóta í fjármála- og efnahagsráðuneytinu og var jafnframt staðgengill ráðuneytisstjóra. Hann hefur komið að fjölbreyttum verkefnum á sviði heilbrigðismála, þar á meðal undirbúningi að stofnun Sjúkratrygginga árið 2008, og situr í stjórn Nýs Landspítala ohf. Sigurður hefur einnig starfað hjá OECD í París, Norrænu ráðherranefndinni og fjármálaráðuneytinu, auk þess að hafa leitt ráðgjafarfyrirtækið Stjórnhætti.

Áslaug Hulda Jónsdóttir

Áslaug Hulda Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Þróunarsviðs, býr yfir víðtækri reynslu úr rekstri, opinberri stjórnsýslu, stefnumótun og innleiðingu breytinga. Hún var framkvæmdastjóri Hjallastefnunnar í tæpan áratug og aðstoðarmaður Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Hún sat í bæjarstjórn Garðabæjar í 12 ár, var forseti bæjarstjórnar og formaður bæjarráðs. Áslaug Hulda hefur verið í fjölda stjórna, starfshópa og nefnda samhliða störfum sínum en hún sat m.a. í stjórn Gildis lífeyrissjóðs, Viðskiptaráðs, SVÞ og var formaður Samtaka sjálfstætt starfandi skóla.

Elmar Hallgríms Hallgrímsson

Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Samningasviðs, er lögfræðingur frá Háskóla Íslands og með LLM gráðu frá University of Pennsylvania í Bandaríkjunum. Hann lauk meistaranámi í fjármálum fyrirtækja og viðskiptasiðfræði frá HÍ, einnig prófi í verðbréfaviðskiptum. Hann hefur leyfi til að starfa sem héraðsdómslögmaður. Elmar hefur m.a. starfað í stjórnunarstöðu hjá Samiðn, Sýn, 365 miðlum og var um árabil lektor við Háskóla Íslands, og starfar þar nú samhliða starfi í Sjúkratryggingum sem stundakennari í viðskiptafræðideild og kennir m.a. samningatækni í MBA-námi HÍ, sem og við viðskiptafræðideild skólans.

Margrét Björk Svavarsdóttir – framkvæmdastjóri Fjármála og eftirlits

Margrét Björk Svavarsdóttir – framkvæmdastjóri Fjármála og eftirlits

Margrét Björk kemur til starfa hjá Sjúkratryggingum með víðtæka reynslu af opinberum fjármálum, stefnumótun og rekstri innan heilbrigðiskerfisins. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri fjármála hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sérfræðingur í heilbrigðisráðuneytinu og leiðandi sérfræðingur í Fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Í fyrri störfum hefur hún unnið að fjölbreyttum verkefnum á sviði fjármálastjórnunar, áætlanagerðar, gagnagreiningar og rekstrargreiningar. Margrét er hagfræðingur að mennt og með meistaragráðu í heilsuhagfræði.

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Þjónustu

Steinunn Hlíf Sigurðardóttir – framkvæmdastjóri Þjónustu

Steinunn Hlíf hefur yfirgripsmikla stjórnunar- og leiðtogareynslu úr fjármála-, trygginga- og þjónustuumhverfi. Hún hefur meðal annars gegnt stjórnendastörfum hjá Arion banka, Verði tryggingum, Landsbankanum og Sjóvá. Á starfsferli sínum hefur Steinunn Hlíf leitt verkefni á sviði þjónustu, reksturs, stafrænnar umbreytingar, gagnavinnslu og sjálfvirknivæðingar. Hún hefur lagt sérstaka áherslu á notendamiðaða þjónustu, skilvirkni og góða upplifun notenda. Steinunn Hlíf er með B.A.-gráðu í viðskiptafræði með aukagrein í hagfræði frá Flagler College og hefur auk þess sótt fjölbreytta leiðtogaþjálfun á sviði stefnumótandi forystu.