Fara beint í efnið
Sjúkratryggingar Forsíða
Sjúkratryggingar Forsíða

Sjúkratryggingar

Breytingar á komugjöldum frá 1. september 2026

22. júlí 2026

Sjúkratryggingar vekja athygli á því að þann 1. september næstkomandi tekur gildi reglugerð um breytingar á komugjöldum.

Um forsendur breytinganna má lesa hér: Stjórnarráðið | Breytingar á komugjöldum

Komugjöld á heilsugæslu á dagvinnutíma

  • Komugjald almennt sjúkratryggðra verður 1.000 kr. (áður 500 kr.)

  • Komugjaldið gildir einnig vegna sálfræðiþjónustu, leghálsskimana og röntgenmyndatöku af brjóstum vegna krabbameinsleitar

  • Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekkert komugjald

Komugjald heilsugæslu utan dagvinnutíma

  • Komugjald almennt sjúkratryggðra verður 3.500 kr. (áður 3.100 kr.)

  • Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekkert komugjald

Gjald fyrir vitjun læknis á dagvinnutíma

  • Almennt sjúkratryggðir 3.800 kr. (áður 3.400 kr.)

  • Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekkert gjald

Gjald fyrir vitjun læknis utan dagvinnutíma

  • Almennt sjúkratryggðir 5.000 kr. (áður 4.500 kr.)

  • Aldraðir, öryrkjar og börn greiða ekkert gjald

Komugjald fyrir þjónustu í sjúkrabíl á vettvangi

  • Komugjald fyrir þjónustu í sjúkrabíl sem staðsett er á vettvangi lýtur sömu reglum og komugjald á heilsugæslu. Þetta á til dæmis við um sjúkrabíla sem eru staðsettir á vettvangi sökum fjarlægðar til næstu heilsugæslu og á tilfallandi útihátíðum

  • Gjald vegna sjúkraflutnings verður óbreytt

Komugjald fellur innan greiðsluþátttökukerfis heilbrigðisþjónustu en hér má nálgast frekari upplýsingar um greiðsluþátttökukerfið

Sérstakt komugjald vegna sjúkra-, iðju- og talþjálfunar

Tekið verður upp sérstakt komugjald í þjálfun sem kemur til viðbótar við gjald skv. greiðsluþátttökukerfinu.

  • Almennt sjúkratryggðir 1.500 kr.

  • Aldraðir 1.000 kr.

  • Öryrkjar 500 kr.

  • Ekkert komugjald verður innheimt af þeim sem eru yngri en 18 ára

Vakin er athygli á að sérstakt komugjald í þjálfun er ótengt greiðsluþátttökukerfi heilbrigðisþjónustu og því alltaf hið sama, óháð fjölda koma.