Sjúkratryggingar hlut Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
8. maí 2026
Sjúkratryggingar hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 í flokknum ráðuneyti, stofnanir og opinber hlutafélög

Fullt hús á Nýsköpunardegi hins opinbera 2026 | Fjársýslan
Sjúkratryggingar hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera 2026 í flokknum ráðuneyti, stofnanir og opinber hlutafélög fyrir verkefni á sviði fjarheilbrigðisþjónustu í samstarfi við Húðvaktina. Verðlaunin eru veitt fyrir tilraunasamning um veitingu fjarheilbrigðisþjónustu í gegnum örugga vefgátt sem hefur skapað nýjar leiðir til að auka aðgengi að sérfræðiþjónustu með einfaldari og skilvirkari hætti.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Verkefni sem hefur veitt um 6.000 einstaklingum heilbrigðisþjónustu án þess að nokkur þurfti að panta tíma, ferðast eða taka frí frá vinnu til að hitta sérfræðing. Þið sýnduð að hægt er að kaupa nýsköpun með skynsamlegri samningagerð sem leyfir nýjum aðferðum að sanna sig í rekstri.“ Dómnefndin var einróma um að verkefnið væri fordæmi sem aðrar stofnanir og ráðuneyti gætu og ættu að fylgja eftir.
Fjarheilbrigðisþjónusta er stórt umbreytingarskref fyrir íslenska heilbrigðiskerfið og þessi viðurkenning staðfestir mikilvægi þess að styðja við þróun á nýjum þjónustuleiðum þar sem stafrænar lausnir eru nýttar til að bæta aðgengi og upplifun notenda. Verkefnið er liður í áframhaldandi þróun skilvirkari heilbrigðisþjónustu þar sem markmiðið er að mæta þörfum einstaklinga með betri nýtingu tíma og fjármuna. Sjúkratryggingar vilja áfram skapa svigrúm fyrir fleiri nýsköpunarverkefni af þessu tagi í góðu samstarfi við þjónustuaðila.
Takk fyrir okkur - viðurkenningin er mikilvæg hvatning til frekari framþróunar og nýsköpunar.
