Námskeið í íslensku táknmáli haustið 2024
9. ágúst 2024
Samskiptamiðstöð býður upp á fjölmörg námskeið í íslensku táknmáli haustið 2024
Grunnnámskeið í íslensku táknmáli fyrir foreldra og aðra aðstandendur táknmálsbarna. Námskeiðið hefst 28. ágúst og lýkur 11. desember. Kennt verður alla miðvikudaga frá kl. 14:30 – 16:00. Námskeiðið er foreldrum og aðstandendum táknmálsbarna þeim að kostnaðarlausu.
Íslenskt táknmál ÍTM A1 – 1 Dagnámskeið. Kennt verður á mánudögum og miðvikudögum frá kl. 12:00 – 13:00. Námskeiðið er 30 klst. og hefst mánudaginn 2. september og lýkur 11. desember. Þetta námskeið kostar 39.750 kr.
Íslenskt táknmál ÍTM A1 – 1 Kvöldnámskeið. Kennt verður á mánudögum frá kl. 18:30 – 20:30. Námskeiðið er 30 klst. og hefst mánudaginn 2. september og lýkur mánudaginn 9. desember. Þetta námskeið kostar 49.700 kr.
Íslenskt táknmál ÍTM A1 – 2 Kvöldnámskeið. Námskeiðið er framhald af ÍTM A1-1. Kennt verður á miðvikudögum frá kl. 18:30 – 20:30. Námskeiðið er 30 klst og hefst miðvikudaginn 4. september og lýkur miðvikudaginn 11. desember. Þetta námskeið kostar 49.700 kr.
Kennslan fer fram á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Laugavegi 166, 5. hæð.
Nánari upplýsingar veitir Eyrún Helga Aradóttir taknmal@shh.is
Skráning fer fram á heimasíðu Samskiptamiðstöðvar https://island.is/s/shh/skraning-a-namskeid
Vekjum athygli á því að allt fólk sem greinist með heyrnarskerðingu skal undanþegið greiðslu námskeiðsgjalda á táknmálsnámskeiðum stofnunarinnar.