Íslenskt táknmál - framhaldsnámskeið fyrir Döff innflytjendur
29. ágúst 2025
Vinnumálastofnun býður döff innflytjendum upp á framhaldsnámskeið í íslensku táknmáli.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa nokkra undirstöðu í íslensku táknmáli. Kennt verður 1 x í viku, á þriðjudögum, 3 klst. í senn frá kl. 17:00 – 20:00 og að auki verður kennt nokkra laugardaga; 13. sept., 4. okt., 25. okt., 15. nóv. og 6. des. Á laugardögum verður kennt frá kl. 10:00 – 13:00. Námskeiðið hefst þriðjudaginn 9. september og lýkur þriðjudaginn 9. desember. Námskeiðið er samtals 57 klst.
Kennt verður á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, Laugavegi 166, 4. hæð.
Hafið samband við Eyrúnu Helgu Aradóttur, sviðsstjóra táknmálssviðs, taknmal@shh.is ef þið óskið eftir frekari upplýsingum. Skráning á námskeiðið fer fram á heimasíðu SHH: Skráning á námskeið
