Byrjendanámskeið í íslensku táknmáli fyrir döff innflytjendur
30. janúar 2026
Vinnumálastofnun býður döff innflytjendum upp á grunnnámskeið í íslensku táknmáli.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lítinn sem engan grunn í íslensku táknmáli. Kennt verður 1 x í viku, á mánudögum, 2 klst í senn, frá kl. 09:00 – 11:00.
Kennt verður á Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskerta, Laugavegi 166, 5. hæð.
Hafið samband við Eyrúnu Helgu Aradóttur, sviðsstjóra táknmálssviðs, taknmal@shh.is ef þið óskið eftir frekari upplýsingum. Skráning á námskeiðið fer fram á heimasíðu SHH: Skráning á námskeið
Námskeiðið hefst mánudaginn 9. febrúar og lýkur mánudaginn 18. maí. Samtals 30 klst.
