Fara beint í efnið

Starfsemistölur fyrir allt árið 2023

12. janúar 2024

Rúmanýting með því hæsta sem sést hefur.

Hildigunnur Svavarsdóttir forstjóri SAk - landscape
  • Fjöldi dvalardaga á árinu voru 29.492, sem er rúmlega 4% meira en árið 2022 og er meðaldvöl á deild 4,7 dagar.

  • Flestir sjúklinganna eru lagðir inn í bráðainnlögn en þær eru rúmlega 77% af heildarinnlögnum.

  • Mikið álag hefur verið á legudeildunum og hefur rúmanýting aukist töluvert. Á lyflækningadeild var rúmanýting 100,4% nú en 89,2% í fyrra og á skurðlækningadeild 96,2% nú en 89% í fyrra. Einnig hefur verið álag á geðdeildinni og rúmanýting þar á árinu 84,3% samanborið við 75,2% í fyrra.

  • Um 13% aukning hefur verið í bráðakomum einstaklinga 75 ára og eldri síðan fyrir Covid-19 með tilheyrandi aukningu þessa aldurshóps í innlögn á deildir SAk. Að meðaltali eru um 6,4 einstaklingar inniliggjandi sem eru búnir í meðferð eða bíða eftir endurhæfingu eða plássi á hjúkrunarheimili.

  • Rúmlega 10.500 einstaklingar hafa fengið þjónustu á göngudeild og þar af 2.273 vegna krabbameinslyfjagjafar, samanborið við 2.180 í fyrra og er það um 5% aukning.

  • Á bráðamóttöku og göngudeild bráðamóttöku er fjöldi samskipta rúmlega 17.900 samanborið við 16.558 á sama tíma í fyrra og því aukningin milli ára rúmlega 8%. Biðtími eftir því að hitta lækni á bráðamóttöku er nú um 43 mínútur sem er aðeins yfir viðmiðum okkar um 40 mínútna bið eftir lækni.

  • Skurðaðgerðir á árinu voru 2.598 og er 33,4% aðgerða bráðaaðgerðir. Gerviliðaaðgerðir voru 330 sem er aðeins undir áætlun ársins.

  • Fjöldi myndgreiningarannsókna (án brjóstamynda) var um 40.300 og gerir það að meðaltali um 110 rannsóknir á dag.

  • Rannsóknir sem unnar voru á rannsóknadeild á árinu voru 282.000 og þar af voru framkvæmd 269 PCR-Covid próf.

  • Á árinu voru um 6% færri fæðingar en í fyrra og fæddust nú 410 börn samanborið við 436 börn í fyrra.

  • Mikið hefur verið um ferðamenn á árinu og er um 27% aukning milli ára í komum ósjúkratryggðra á bráðamóttöku. Að sama skapi er fjöldi innlagðra svipaður og í fyrra með áberandi toppi yfir sumarmánuðina.