Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vísindakaffi Rannís í Borgarnesi: Matur morgundagsins - Hvernig getur líftækni umbylt leiknum?

26. nóvember 2025

20:00 til 21:30

Brákarbraut 13-15, Landnámssetur Íslands,

310, Borgarnes

Matur dagsins í dag er oft of fituríkur, of sykraður, skaðlegur fyrir umhverfið… og allt of miklu er sóað. Í ljósi þessara brýnu áskorana, hvernig getur líftækni – og nýsköpun drifin áfram af nemendum – umbreytt því hvernig við framleiðum, neytum og varðveitum auðlindir okkar?

Komdu á Vísindakaffi Rannís, miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20:00 í Landnámssetri Íslands í Borgarnesi, og spjallaðu við Sophie Mothré, framkvæmdastjóra nýsköpunarverkefna SupBiotech .

Sophie Mothré er sérfræðingur í líftækni með doktorsgráðu í heilsuvísindum. Hún hefur unnið að hagnýtum líftækniverkefnum hjá WatchFrog og leiðir nú þróun fræðslu- og vísindaáætlana við SupBiotech, þar sem hún sameinar nýsköpun, kennslu og leiðsögn nemenda.

Vísindakaffi Rannís í Borgarnesi er í samstarfi við Landbúnaðarháskóla Íslands, the Unigreen Alliance og Sendiráð Frakklands á Íslandi .

Hvað: Vísindakaffi Rannís.
Hvar: Landnámssetri Íslands, Brákarbraut 13-15, Borgarnesi.
Hvenær: Miðvikudaginn 26. nóvember kl. 20:00.

Aðgangur er ókeypis og öll velkomin

Viðburðurinn fer fram á ensku

Uppáhellt kaffi í boði fyrir gesti.

Gestir geta einnig keypt aðra drykki hjá Landnámssetrinu.

Viðburðurinn er um það bil ein og hálf klukkustund.