Vísindakaffi Rannís á Hygge í Borgartúni: Vísindi til áhrifa - hreyfiafl samfélagslegrar nýsköpunar og frumkvöðlastarfs
20. október 2026
18:00 til 19:30
Hygge - Kaffi & Bakarí, Borgartún 24,
105 Reykjavík

Hvernig geta vísindi og rannsóknir leitt til lausna sem bæta samfélagið?
Komdu á Vísindakaffi Rannís, þriðjudaginn 20.október kl. 18:00 á Hygge, kaffi og bakarí í Borgartúni 24. Við bjóðum þér að eiga notalega stund, hlusta og eiga samtal, við þau Laurence Beierlein og Rögnvald Sæmundsson.
Laurence Beierlein er dósent við UPEC-háskólann í París. Hún er meðal umsjónaraðila meistaranáms í stjórnun samfélagsábyrgðar fyrirtækja og í forsvari fyrir þátttöku UPEC í EURIDICE, samstarfsverkefni þvert á nokkra evrópska háskóla og samstarfsaðila um eflingu menntunar á sviði stafræns samfélags, samfélagslegrar nýsköpunar og hnattrænnar borgaravitundar. EURIDICE varð til innan evrópska háskólanetsins Aurora.
Rögnvaldur Sæmundsson er verkfræðingur með doktorsgráðu í tæknistjórnun. Hann hefur tekið þátt í og stundað rannsóknir á nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi og er nú aðstoðarrektor vísinda og þverfræðileika við Háskóla Íslands.
Þetta Vísindakaffi Rannís, er unnið í samstarfi við Sendiráð Frakklands á Íslandi, Háskóla Íslands og UPEC háskólann í París. Bæði HÍ og UPEC eru í evrópska háskólanetinu Aurora þar sem megináherslan er á samfélagsleg áhrif menntunar og rannsókna, meðal annars með samfélagslegri nýsköpun og frumkvöðlastarfi.
Hvað: Vísindakaffi Rannís.
Hvar: Hygge, Borgartúni 24, 105 Reykjavík
Hvenær: Þriðjudaginn 20. október kl. 18:00.
Aðgangur er ókeypis og öll velkomin.
Viðburðurinn fer fram á ensku.
Kaffi í boði fyrir gesti, velkomið að kaupa aðrar veitingar hjá Hygge.
Viðburðurinn er um það bil ein og hálf klukkustund.