Námskeið um LIFE-áætlunina á Egilsstöðum
15. október 2026
09:00 til 12:00
Austurbrú, Tjarnarbraut 39, Egilsstaðir

Á námskeiðinu verður farið yfir umsóknarferlið í LIFE-áætluninni og helstu atriði sem gott er að hafa í huga við umsóknarskrif og gerð fjárhagsáætlana.
Einnig er hægt að bóka fund með landstengiliðum LIFE eftir hádegi 15. október með því að hafa samband við life@rannis.is.
Vinnustofan er á íslensku.
Um LIFE-áætlunina
LIFE er styrkjaáætlun Evrópusambandsins á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Markmið hennar eru meðal annars að:
vernda náttúru og líffræðilega fjölbreytni í Evrópu og vinna gegn hnignun vistkerfa,
flýta fyrir hreinum orkuskiptum með aukinni orkunýtni og nýtingu endurnýjanlegrar orku,
draga úr losun gróðurhúsalofttegunda, auka viðnámsþol gagnvart loftslagsbreytingum og efla vitund um loftslagsmál,
stuðla að hringrásarhagkerfi með þróun og innleiðingu nýrrar tækni og lausna,
vernda, endurheimta og bæta umhverfið og stuðla þannig að auknum lífsgæðum.
LIFE-verkefnum er ætlað að þróa, sannreyna og skala upp nýstárlegar lausnir á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Áhersla er lögð á að góðar lausnir og þekking nýtist sem víðast, stuðli að breyttri hegðun og styðji við innleiðingu stefnu, áætlana og löggjafar Evrópusambandsins.
Verkefnin eiga jafnframt að skapa forsendur fyrir því að árangursríkar lausnir verði teknar upp víðar og innleiddar í stærri mæli.