Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vinnustofa fyrir þver-evrópska vinnuhópinn Konur í gervigreind (Women in AI)

17. desember 2025

16:30 til 19:00

Hannesarholt, Grundarstíg 10,

101 Reykjavík

Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH Ísland) býður til þessa fyrsta fundar verkefnisins en markmiðið er að skapa öruggt og hvetjandi rými fyrir konur sem starfa með, eða hafa áhuga á, gervigreind og stafrænum lausnum.

Á vinnustofunni verður:

  • Farið yfir uppruna og sýn vinnuhópsins

  • Rýnt í helstu áskoranir og tækifæri fyrir konur á þessu sviði

  • Efla samstarf innan vinnuhópsins og mynda tengslanet

Þessi viðburður er frábært tækifæri til að kynnast fleiri konum með áhuga á gervigreind og leggja grunn að nýjum vinnuhóp sem Ísland leiðir næstu þrjú árin.

Húsið opnar klukkan 16:30 en vinnustofan hefst klukkan 17:00.

Skráðu þig til leiks og njóttu aðventunnar með okkur.

Skráning á konur í gervigreind

Nýtt þriggja ára tímabil EDIH hefst 1. jan 2026 og samanstendur af Háskóla Íslands, Háskólanum í Reykjavík, Auðnu, Almannarómi og Rannís, sem einnig leiðir verkefnið