Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Viltu vita meira um hvernig eTwinning getur nýst þér í Nordplus Junior?

2. september 2026

15:00 til 16:00

Vefnámskeið

Ertu þátttakandi í Nordplus Junior-verkefni eða með verkefni í undirbúningi? Á vefnámskeiði 2. september verður sýnt hvernig nýta má eTwinning til að auðvelda samstarf, halda utan um verkefnavinnuna og virkja nemendur. Námskeiðið fer fram á ensku og er opið kennurum, skólastjórnendum og samstarfsaðilum í Nordplus Junior-verkefnum.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • leiðir til að halda utan um samskipti og verkefnastjórnun,

  • samstarf og verkefnavinnu nemenda í öruggu stafrænu umhverfi,

  • skráningu og miðlun verkefna,

  • dæmi um hvernig eTwinning og Nordplus Junior geta farið saman.

Jenni Decandia, eTwinning-sendiherra í Finnlandi, leiðir námskeiðið ásamt Ann Katrine Stendahl Rannedal eTwinning-sendiherra frá Danmörku.

Skráning og nánari upplýsingar

Frétt á vef eTwinning