Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Viltu undirbúa norrænt samstarfsverkefni? Velkomin á Nordplus Café

8. september 2026

12:00 til 13:00

Á netinu - á ensku

Hefur þú hugmynd að samstarfsverkefni með stofnun í öðru norrænu landi eða Eystrasaltsríki? Á rafrænum kynningarfundi Nordplus Café 8. september verður fjallað um styrki til undirbúningsheimsókna og námsheimsókna.

Hvenær: Þriðjudaginn 8. september, kl. 12:00–13:00 að íslenskum tíma
Hvar:
Fundurinn fer fram á netinu
Tungumál: Enska
Skráningarfrestur: 7. september

Fundurinn er ætlaður fulltrúum íslenskra skóla, fræðsluaðila, félagasamtaka og annarra stofnana sem vilja stíga fyrstu skrefin í átt að norrænu eða norrænu-baltnesku samstarfi.

Hægt er að sækja um styrki til undirbúningsheimsókna innan Nordplus Junior, Nordplus Voksen og Nordplus Norrænu tungumálaáætlunarinnar. Innan Nordplus Junior er einnig hægt að sækja um styrki til námsheimsókna.

Á fundinum verður farið yfir hvernig hægt er að hefja samstarf við stofnanir í öðrum þátttökulöndum, þróa verkefnishugmynd og undirbúa umsókn. Einnig gefst þátttakendum færi á að spyrja spurninga, fá innblástur og kynnast mögulegum samstarfsaðilum.

Skráning á Nordplus Café

Umsóknargáttin fyrir undirbúningsverkefni er opin frá 25. ágúst til 1. október 2026.

Nánari upplýsingar um styrkina og aðstoð við umsóknir fást hjá landskrifstofu Nordplus hjá Rannís.