Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Ársfundur Erasmus+ 2026 - Færni til framtíðar

5. mars 2026

12:15 til 16:00

Hátíðarsalur Tækniskólans við Háteigsveg (Sjómannaskólinn í Reykjavík)

Rannís og Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi halda ársfund Erasmus+ 2026 þann 5. mars kl. 12:15-16:00 og ber hann yfirskriftina Færni til framtíðar. Fundurinn verður haldinn í húsnæði Tækniskólans í Sjómannaskólahúsinu við Háteigsveg.

Ársfundur Erasmus+ 2026 hefur það að markmiði að stuðla að umræðu um stöðu færnimála á Íslandi og setja færniþróun fyrir framtíðina í forgrunn með því að kynna helstu tækifæri og árangur af Evrópusamvinnu.

Gert er ráð fyrir á fundinn frá öllum sviðum menntunar, æskulýðsmála og íþrótta. Viðburðurinn hefst með hádegisverði kl 12:15 og síðan tekur formleg dagskrá við kl. 13:00 í hátíðarsal Sjómannaskólans.

Það er okkar von að viðburðurinn leggi sitt af mörkum til að auka þekkingu á evrópskum tækifærum, miðli niðurstöðum árangursríkra verkefna og stuðli að vönduðum umsóknum um framtíðarverkefni sem geta haft mikil, víðtæk og varanleg áhrif á færniþróun hérlendis.

Skráning á ársfund Erasmus+

Dagskrá*

12:15 - Hádegisverður
13:00 - Opnunarávarp: Enginn er eyland: Færni, tengsl og tækifæri í Erasmus+ (Einnig í streymi)
Rúna Vigdís Guðmarsdóttir, forstöðukona Landskrifstofu Erasmus+.

13:15 - Meira en spor í sandinn: Hvernig umhyggja og alþjóðleg reynsla eflir fólk og samfélag (Einnig í streymi)
Dr. Jakob Frímann Þorsteinsson lektor og formaður námsbrautar í tómstunda- og félagsmálafræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands.

Í erindinu er skoðað hvernig nám erlendis og þátttaka í samfélagsverkefnum eflir lýðræðisvitund og aðlögunarhæfni einstaklinga. Lögð er áhersla á reynslunám í raunheimum og villta kennslufræði, þar sem útivist og ævintýri þjálfa þrautsegju og athygli. Fjallað er um mikilvægi þess að læra af umhverfi sínu af umhyggju og hvernig slík reynsla dýpkar samskiptafærni í alþjóðlegu samhengi – á tímum þar sem margt stelur athygli okkar.

Með því að virkja athyglina og læra með náttúrunni mörkum við spor sem hafa varanleg áhrif á okkur sjálf og samfélagið.

14:30 - Vinnustofur

  • Stafræn færni í námi og kennslu

  • Lýðræðis-og fjölmenningarfærni

  • Færni fyrir nýsköpun og skapandi greinar

  • Starfsþróun og færni á vinnumarkaði

15:40 - Samantekt
16:00 - Fundi lýkur

*Birt með fyrirvara um breytingar

Erasmus+, mennta- og æskulýðsáætlun ESB ásamt tengdum stoðverkefnum, sem Rannís hýsir hér á landi, bjóða upp á fjölbreytt tækifæri til að byggja upp fagþekkingu, þróa nýjar lausnir í námi og kennslu og verkfæri til að efla, meta og miðla betur upplýsingum um færni innan evrópska menntasvæðisins.

Hluti viðburðar verður í streymi og birtist hlekkur á streymi hér fyrir neðan þegar nær dregur

Smelltu hér til að horfa á ársfund Erasmus+ í streymi

Facebook viðburður

LinkedIn viðburður