Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vefstofa: Gervigreind í Erasmus+

20. apríl 2026

14:30 til 15:30

Vefstofa

Gervigreind er í auknum mæli notuð í Erasmus+ verkefnum sem og annars staðar í samfélaginu, bæði við gerð umsókna og í framkvæmd verkefna. En hvar liggja mörkin? Hvað er í lagi og hvað þarf að varast?

Á vefstofunni Gervigreind í Erasmus+ verður fjallað um ábyrga og gagnrýna notkun gervigreindar í Erasmus+ og European Solidarity Corps með sérstakri áherslu á inngildingu og mögulega hlutdrægni í gervigreindarkerfum. Tekið verður fyrir hvað má og hvað má ekki þegar kemur að notkun gervigreindar í umsóknum, skýrslugerð og verkefnavinnu.

Vefstofan hentar öllum sem koma að framkvæmd verkefna í Erasmus+ og European Solidarity Corps eða hafa hug á því.

Hlekkur á vefstofu

Skráning á vefstofu