Vefstofa: Andleg heilsa í skiptinámi
22. apríl 2026
13:00 til 14:00
Vefstofa á TEAMS

Áhugaverð og fræðandi vefstofa á vegum Euroguidance og Eurodesk um andlega heilsu ungmenna í skiptinámi.
Vefstofan er hugsuð fyrir náms- og starfsráðgjafa, aðra ráðgjafa sem og starfsfólk sem starfar með ungu fólki sem hyggur á skiptinám, starfsnám eða sjálfboðaliðastörf erlendis.
Vefstofan er tvíþætt, Í fyrri hlutanum verður fjallað um hlutverk ráðgjafar við bæði undirbúning og eftirfylgni námsdvalar nemenda erlendis og í síðari hluta kynningarinnar verður farið yfir bækling Eurodesk um andlega heilsu á meðan dvöl erlendis stendur. Þar er m.a. farið yfir menningarsjokk, rauð flögg um andlega heilsu og góð ráð til að takast á við heimþrá.
Hvenær: 22. apríl, kl. 13:00 - 14:00
Hvar: Á TEAMS (Hlekkur verður sendur á skráða þátttakendur).
Skráning: Smelltu hér til að skrá þig á vefstofuna