Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vefstofa: Að vinna með ólík trúarbrögð

28. apríl 2026

14:00 til 15:00

Vefstofa á TEAMS

Í tilefni af evrópsku ungmennavikunni býður Eurodesk á Íslandi á stutta vefstofu þar sem inngildingarfulltrúi Landskrifstofu Erasmus+ mun fara yfir nokkrar leiðir til að vinna með fólki með ólíkan trúarbakgrunn í gegnum hugtakið „þvertrúarlegt samtal“ (e. interfaith dialogues).

Á vefstofunni verður farið yfir hvað slíkt samtal felur í sér, hvaða áhrif það hefur á inngildingu ungs fólks með fjölbreyttan bakgrunn og hvernig Erasmus+ getur nýst sem verkfæri til að stuðla að slíku samtali.

Vefstofan er byggð á þekkingu sem inngildingarfulltrúi Landskrifstofu Erasmus+ aflaði sér á sérstöku Erasmus+ námskeiði um þvertrúarlegt samtal í Sarajevo í október 2025.

Vefstofan hentar öllum sem starfa með ungu fólki og eru í Erasmus+ og European Solidarity Corps verkefnum eða gætu haft áhuga á þeim, eða hafa áhuga á málefninu.

Smelltu hér til að krá þig á vefstofuna

Vefstofan fer fram á TEAMS