Vefnámskeið um mikilvægar breytingar og ný tækifær fyrir rannsakenduri innan ERC fyrir 2027
10. september 2026
13:00 til 14:00
Á netinu

Þann 10. september stendur European Research Council (ERC) fyrir opinni vefstofu þar sem farið verður yfir köllin 2027 og helstu breytingar sem umsækjendur þurfa að hafa í huga.
Meðal þess sem fjallað verður um er:
ERC köll ársins 2027
Styrkupphæðir og umsóknatímalína
Víðari hæfnisviðmið fyrir Starting og Consolidator Grant
Breytingar á reglum um skil umsókna
Hagnýt ráð fyrir undirbúning umsókna
Fyrsta styrkjakallið samkvæmt starfsáætluninni, ERC Starting Grant 2027, opnaði 22. júlí. Í kjölfarið verða opnuð köll fyrir Consolidator Grant, Synergy Grant, Advanced Grant og ERC Plus Grant.
Fyrir íslenskt rannsóknasamfélag er þetta frábært tækifæri til að kynna sér nýjustu áherslur ERC og undirbúa sterkar umsóknir í einu samkeppnishæfasta rannsóknastyrkjakerfi Evrópu.
Vefnámskeiðið er öllum opið og fer fram á netinu.