Vaxtarsprotinn 2026
2. september 2026
09:00 til 10:00
Kaffi Flóru, Laugardalnum
Bæta við í dagatal

Vaxtarsprotinn 2026 verður afhentur í Kaffi Flóru í Laugardalnum miðvikudaginn 2. september kl. 9-10.
Vaxtarsprotinn er afhentur þeim sprotafyrirtækjum sem sýna mestan vöxt í söluveltu milli síðasta árs og ársins á undan. Skilyrði fyrir tilnefningu er að frumkvöðull sé til staðar í fyrirtækinu og fyrirtækið má ekki vera í meirihlutaeigu fyrirtækis á meðal 100 stærstu á Íslandi, fyrirtækis á aðallista Kauphallar eða vera sjálft á aðallista Kauphallar. Einnig er veitt viðurkenning til sprotafyrirtækja sem náð hafa þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna.
Hægt að senda inn tilnefningar fyrir Vaxtarsprotann 2026: