Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Sögur sem heilla: áhrifarík sagnamiðlun fyrir fræðimenn og frumkvöðla

18. september 2026

13:00 til 16:00

Háskóli Íslands, Saga (stofa 285) og á Zoom

Þetta námskeið er öllum opið en sýnendur á Vísindavöku eru sérstaklega hvött til að taka skrá sig og taka þátt.

Manneskjan er í eðli sínu sagnavera. Rannsóknir sýna að frásagnir eru ein áhrifaríkasta leiðin til að miðla upplýsingum, vekja áhuga áheyrenda og hvetja til aðgerða.

Á þessu hagnýta námskeiði munt þú læra aðferðir í frásagnalist sem hægt er að laga að fjölbreyttum tilgangi og ólíkum markhópum. Hvort sem þú ert rannsakandi sem kemur fram í fjölmiðlum, vísindamiðlari sem á í samskiptum við almenning á vísindahátíð, eða frumkvöðull sem kynnir hugmynd fyrir mögulegum fjárfestum, mun námskeiðið hjálpa þér að þróa þá framsetningarhæfni sem þarf til að koma skilaboðum þínum á framfæri.

Þú munt læra að skapa áhrifaríkar "sögukrækjur" og byggja frásagnir þínar upp á áhrifamikinn hátt, auk þess sem þú færð tækifæri til að prófa og þróa hugmyndir þínar í styðjandi umhverfi þar sem þátttakendur læra hver af öðrum. Námskeiðið er hagnýtt að eðli og undirbýr þig fyrir viðburði á borð við Vísindaslamm, Vísindavöku og Nýsköpunarvikuna.

Námskeiðið verður kennt á íslensku eða ensku, eftir þörfum þátttakenda.

Í boði er bæði að mæta á staðinn í Háskóla Íslands eða taka þátt í gegnum fjarfundabúnað (ZOOM)

Dags: föstudaginn 18. september 2026.

Tími: kl. 13:00 til 16:00.

Staðsetning: Háskóli Íslands, Saga (stofa 285) og á Zoom.

Dagskrá*

  • 13:00-13:15 Velkomin og skipulag námskeiðs

  • 13:15-13:30 Helstu nauðsynjar í vísindamiðlun, Jean-Paul Bertemes, forstöðumaður vísinda í samfélaginu hjá Rannsóknasjóði Luxemborgar (á Zoom).

  • 13:30-13:45 Spurningar og svör.

  • 13:45-14:00 Af hverju sagnagerð er mikilvæg, Toby Erik Wikström, verkefnisstjóri við Miðstöð framhaldsnáms HÍ.

  • 14:00-14:30 Hugsaðu: Einstaklingsvinna: sögusögn, krókur og framsetning.

  • 14:30-14:45 Hlé.

  • 14:45-15:00 Paravinna: jafninga-endurgjöf á kynningum.

  • 15:00-15:50 Kynningar til þátttakenda og endurgjöf.

  • 15:50-16:00 Samantekt og næstu skref.

Smelltu hér til að skrá þig

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar.