Rafrænn kynningarfundur um nýja áætlun Uppbyggingarsjóðs EES
17. apríl 2026
09:00 til 10:00
Fundurinn fer fram á Teams

Rannís, í samstarfi við utanríkisráðneytið og skrifstofu Uppbyggingarsjóðs EES í Brussel (FMO), stendur fyrir rafrænum kynningarfundi um möguleika íslenskra aðila til þátttöku í verkefnum á vegum Uppbyggingasjóðs EES á nýju sjóðstímabili.
Fundurinn verður haldinn á TEAMS föstudaginn 17. apríl kl. 9.00-10.00. (Skráðir þátttakendur fá sendan hlekk daginn áður).
Markmið kynningarfundarsins er að miðla nýjum upplýsingum um áætlanir sjóðsins. Markhópur fundarins eru allir sem hafa áhuga á að taka þátt í umsóknum á vegum Uppbyggingarsjóðs EES á öllum áætlunarsviðum. Öll köll sem birt verða á vegum sjóðsins má nálgast á erlendri vefsíðu Uppbyggingarsjóðs EES.
Rannís mun hafa umsjón með eftirfarandi áætlunum í sjö löndum:
Pólland (Grunnrannsóknir, Hagnýtar rannsóknir, Græn umskipti og Menning)
Portúgal (Bláa hagkerfið og Menning)
Tékkland (Hagnýtar rannsóknir og nýsköpun og Menning)
Rúmenía (Rannsóknir og nýsköpun og Hrein orkuskipti)
Búlgaría (Staðbundin þróun)
Króatía (Græn umbreyting)
Slóvakía (Menningardrifin staðbundin þróun)
En einnig er hægt að taka þátt í verkefnum í hinum löndum áætlunarinnar þ.e. Grikklandi, Eistlandi, Kýpur, Lettlandi, Litháen, Möltu, Slóveníu og Ungverjalandi. Á kynningarfundinum verður farið yfir stöðuna á nýja tímabilinu og þau tækifæri sem eru framundan.
Dagskrá
09:00-09:15 Kynning frá FMO í Brussel – Borgar Þór Einarsson, aðstoðarframkvæmdastjóri FMO í Brussel. Kynning á Uppbyggingarsjóði EES og staðan á nýrri sjóðsáætlun.
09:15-09:45 Hlutverk Rannís sem áætlunarsamstarfsaðila og tækifærin framundan – starfsfólk Rannís og FMO í Brussel - þátttaka aðila frá Íslandi í núverandi sjóðstímabili Uppbyggingarsjóðs EES. Sérstök áhersla á samstarf við Pólland enda verða fyrstu köllin í Grunnrannsóknum og Menningu núna í vor og Hagnýtum rannsóknum í haust.
09:45-10:00 Spurningar og svör – opið fyrir fyrirspurnir frá þátttakendum (við hvetjum fólk til að skrifa inn spurningar á TEAMS á spjallinu á meðan kynningum stendur).
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn.
Nánar um Uppbyggingasjóð EES
Uppbyggingarsjóður EES er fjármagnaður af stjórnvöldum Noregs, Íslands og Liechtenstein. Markmið sjóðsins er að draga úr félagslegum og efnahagslegum ójöfnuði innan Evrópska efnahagssvæðisins og efla tvíhliða samstarf milli EFTA ríkjanna innan EES og fimmtán viðtökuríkja sjóðsins í Evrópu.
Uppbyggingarsjóður EES starfar í sjö ára tímabilum og núverandi tímabil sjóðsins stendur frá 2021-2028, en framkvæmdatími verkefna gildir til apríl 2031. Heildarupphæð sem varið er til styrkja á árunum 2021 - 2028 er um 1,8 milljarður evra.
Samhliða Uppbyggingarsjóði EES starfrækja Norðmenn jafnframt sérsjóð, Norway Grants sem nemur tæpum 1,5 milljarði evra.
Íslenskir aðilar hafa tekið þátt í verkefnum á vegum áætlana EES-samstarfsins allt frá árinu 1994 en umfang þeirra hefur aukist töluvert, áherslusvið breikkað og viðtökuríkjum fjölgað. Ísland leggur nú áherslu á verkefni á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningar, orku- og umhverfismála, og samfélagslegra umbóta. Þátttakendur í fyrri verkefnum hafa nefnt að ávinningur af því að taka þátt felist meðal annars í stækkun tengslanets með samskiptum við fjölbreyttan og alþjóðlegan hóp samstarfsaðila, aukinni þekkingarmiðlun ásamt kosti þess að kynnast nýju starfs- og menningarumhverfi.
Efla þarf þátttöku íslenskra aðila sem ekki hafa áður hlotið tækifæri til alþjóðlegs samstarfs. Það getur opnað á áframhaldandi samstarf íslenskra stofnana, samtaka og fyrirtækja á ýmsum sviðum auk þess sem það veitir möguleika á stofnun viðskiptatengsla og opnun nýrra markaða.
Seinasta tímabil Uppbyggingarsjóðs EES
Heildarfjármagn Uppbyggingarsjóðs EES 2014–2021 var alls 1,5 milljarðar evra. Á sjóðstímabilinu 2014-2021 tóku 238 íslenskir aðilar þátt í 431 verkefni með tólf löndum. Í þeim áætlunum sem Rannís var formlegur samstarfsaðili (DPP) fyrir var góð þátttaka, í menntaáætluninni í Póllandi tóku 57 íslenskir samstarfsaðilar þátt í 104 verkefnum. Í nýsköpunaráætluninni í Portúgal, með áherslu á bláan hagvöxt, voru átta íslenskir samstarfsaðilar í átta verkefnum, í rannsókna- og menntaáætluninni í Rúmeníu voru 12 íslenskir samstarfsaðilar í 45 verkefnum og í menningaráætluninni í Tékklandi tóku 24 íslenskir samstarfsaðilar þátt í 22 verkefnum. Auk þess veitti Rannís íslenskum þátttakendum í Uppbyggingarsjóði EES leiðsögn varðandi þessi fagsvið í öllum viðtökuríkjum, þ.e. á sviði rannsókna, nýsköpunar, menntunar og menningarmála.
Uppskeruhátíð Uppbyggingasjóðs EES á Íslandi fyrir tímabilið 2014-2021 var haldin 29. apríl 2025, en Rannís skipulagði viðburðinn í samstarfi við utanríkisráðuneytið og Umhverfis- og orkustofnun. Þar var fagnað góðum árangri á síðasta tímabili sjóðsins og lögð drög að enn frekari samstarfi við viðtökuríki Uppbyggingarsjóðsins víða um Evrópu.