Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Opið fyrir skráningu á alþjóðlegan tengslaviðburð á IceFish 2026

22. september - 24. september 2026

Smárinn, Kópavogur

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan (IceFish) sýningin fer fram í Fífunni í Kópavogi, dagana 22.–24. september 2026.

Sem hluti af sýningunni stendur Enterprise Europe Network fyrir sérstöku fyrirtækjastefnumóti (matchmaking) dagana 22.–23. september 2026 og er opið fyrir skráningar.

Skráning á fyrirtækjastefnumótið

Viðburðurinn byggir á svokölluðu „hraðstefnumóti“ fyrirtækja, þar sem þátttakendur eiga fyrirfram skipulagða einstaklingsfundi (1:1) með mögulegum samstarfsaðilum.

Þetta gefur tækifæri til að:

  • Finna nýja birgja og viðskiptavini

  • Kanna nýja alþjóðlega markaði

  • Tengjast lykilákvörðunaraðilum

  • Mynda samstarf

Viðburðurinn hentar meðal annars:

  • Framleiðendum og vinnsluaðilum í sjávarútvegi

  • Útgerðarfyrirtækjum

  • Fyrirtækjum í fiskeldi

  • Tæknifyrirtækjum og búnaðarframleiðendum

  • Fjárfestum og sérfræðingum

Þátttakendur koma alls staðar að úr heiminum og því er fyrirtækjastefnumótið opið öllum.

Þátttaka er ókeypis.

Íslenska sjávarútvegs- og fiskeldissýningin og ráðstefnan (IceFish) er einn helsti alþjóðlegi vettvangur fagfólks í sjávarútvegi, fiskvinnslu og fiskeldi. Sýningin nær yfir alla virðiskeðjuna, frá veiðum og leit, til vinnslu, pökkunar og dreifingar og sameinar lykilaðila sem móta framtíð greinarinnar.