Öll velkomin á vinnustofu um umsóknarskrif samstarfsverkefna
11. febrúar 2026
14:00 til 16:00
Rannís, Borgartúni 30, 3ja hæð,
105 Reykjavík

Vinnustofan er fyrir umsækjendur Erasmus+ samstarfsverkefna en næsti umsóknarfrestur samstarfsverkefna er 5. mars 2026.
Við bjóðum öll velkomin á "Application Lab", vinnusmiðju, þar sem hægt er að spjalla við starfsfólk Landskrifstofu og fá ráðgjöf varðandi umsóknarskrif.
Samstarfsverkefnum er sérstaklega ætlað að styðja við áherslur Evrópusambandsins á sviði menntunar og æskulýðsstarfs.
Að auka gæði starfsemi samstarfsaðilanna í verkefninu og deila nýjungum með öðrum, þvert á fag- og starfsgreinar
Að styrkja stofnanir í að vinna þvert á landamæri, skólastig og faggreinar
Að mæta sameiginlegum þörfum og forgangsatriðum á sviði menntunar, þjálfunar, æskulýðs- og íþróttastarfs
Að stuðla að framförum (hjá einstaklingum, stofnunum eða innan einstakra geira) sem leiða til umbóta og nýrra aðferða
Almenn markmið Erasmus+ (horizontal priorities) snúa að aðgengi allra að áætluninni, umhverfisvænt alþjóðastarf, aukna stafræna þróun og færni sem og sameiginleg gildi og borgaralega þátttöku.
Nánari upplýsingar má finna í Erasmus+ handbókinni.
Fyrirspurnir um vinnustofuna og samstarfsverkefni sendist á erasmusplus@rannis.is.