Óformleg fræðsla og skapandi námsrými - súpufundur með fagfólki í fullorðinsfræðslu
24. febrúar 2026
11:30 til 13:30
Nauthóll, Nauthólsvegi 106,
102 Reykjavík

Flutt verða erindi frá hagaðilum sem eru með reynslu af óformlegri fræðslu og notkun skapandi námsrýma.
Að fundinum standa EPALE evrópsk vefgátt í fullorðinsfræðslu, Euroguidance verkefnið fyrir náms- og starfsráðgjafa og European Agenda for Adult Learning (EAAL) verkefnið sem snýr að stefnumörkun stjórnvalda í málaflokknum.
Drög að dagskrá
Inngangsorð, Skúli Leifsson, verkefnastjóri EPALE á Íslandi
Kynning frá Bókasafni Kópavogs, Eyrún Ósk Jónsdóttir, Lísa Z. Valdimarsdóttir
Kynning frá Fjölmenningarskóla Vesturlands, Jovana Pavlovic
Umræður
Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum ykkur til að skrá áhugasama frá ykkar stofnunum á fundinn meðan húsrúm leyfir.
Ekki verður boðið upp á streymi.
Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, verkefnastjóri EPALE á Íslandi.