Nýsköpunarþing 2026 - Hugvit og tækifæri um allt land
29. október 2026
14:00 til 16:00
Gróska, Kristínargata 1,
102, Reykjavík

Rannís, Íslandsstofa, Hugverkastofan og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2026 í Grósku þann 29. október kl. 14:00-16:00.
Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026 verða veitt á þinginu.
Nýsköpunarþing 2026 mun að þessu sinni beina sjónum að nýsköpun á landsbyggðinni - tækifærum, áskorunum og þeim fjölbreyttu hugmyndum sem verða að veruleika um allt land. Nýsköpunarþing er líka í streymi.
Á þinginu koma öflug fyrirtæki og frumkvöðlar úr ólíkum atvinnugreinum og landshlutum og segja frá sinni reynslu af því að byggja upp og þróa nýsköpun utan höfuðborgarsvæðisins. Hvað þarf til að góð hugmynd geti vaxið og dafnað á landsbyggðinni? Hvaða tækifæri felast í staðbundinni þekkingu og sérstöðu ólíkra svæða?
Með fjölbreyttum erindum og samtali verður leitast við að varpa ljósi á kraftinn í nýsköpun um land allt og þær aðstæður sem geta stuðlað að frekari vexti og verðmætasköpun. Í lok þingsins veitir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2026.
Dagskrá*
Opnunarávarp og setning Nýsköpunarþings 2026
Ágúst Hjörtur Ingþórsson, forstöðumaður Rannís
Tækifæri til nýsköpunar í ferðaþjónustu
Knútur Rafn Ármann, stofnandi og eigandi Friðheima
Ignite Nordic: Nýsköpun innan starfandi fyrirtækja
Sigmar Bjarni Sigurðsson, Drift EA
Nýsköpun í verki - stutt erindi frá fyrirtækjum í nýsköpun
Primex: Þóra Ýr Árnadóttir
Grammatek: Anna Nikulásdóttir
Stökkfiskur: Sigrún Finna Snædal
Startup Landið
Anna Lind Björnsdóttir, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi eystra
Guðlaugur Skúlason, verkefnastjóri hjá Samtökum sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Pallborðsumræður
Hvað þarf til að nýsköpun þrífist um land allt?
Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra
Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson
Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.
*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar
Smelltu hér til að opna streymi í nýjum glugga
Morgunkaffi í Grósku
Stofnanirnar sem standa sameiginlega að Nýsköpunarþingi, ásamt KLAK og IceBAN, bjóða í morgunkaffi þar sem gestum gefst tækifæri til að kynnast betur þeirri þjónustu, stuðningi og tækifærum sem þær bjóða frumkvöðlum og fyrirtækjum. Fulltrúar kynna starfsemi sína í stuttu máli og að því loknu gefst svigrúm fyrir samtal, spurningar og ráðgjöf.
Hvenær: Fimmtudaginn 29. október kl. 10:00 til 11:30
Hvar: Hjá Íslandsstofu í Grósku - Hugmyndahúsi, Kristínargötu 1, 102 Reykjavík.
Þingið er haldið árlega í samstarfi Rannís, Íslandsstofu, Hugverkastofunnar og Nýsköpunarsjóðsins Kríu.