Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Nýsköpunarþing 2025 - Ísland í stóru myndinni

30. október 2025

14:00 til 15:30

Gróska, Bjargargötu 1, Aðalsalur,

102, Reykjavík

Mynd fyrir viðburð - Nýsköpunarþing 2025

Rannís, Hugverkastofan, Íslandsstofa og Nýsköpunarsjóðurinn Kría bjóða til Nýsköpunarþings 2025 í Grósku 30. október kl. 14:00-15:30. Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025 verða veitt á þinginu.

Hvað hefur Ísland fram að leggja í nýsköpun á alþjóðlegum markaði og hvernig geta óvæntar vendingar í alþjóðamálum haft áhrif á sókn íslenskra nýsköpunarfyrirtækja erlendis?

Skráning á Nýsköpunarþing

Íslensk nýsköpunarfyrirtæki mæta ýmsum hindrunum á vegferð sinni á erlendum mörkuðum. Að ná fótfestu á nýjum markaði getur reynst flóknara en áætlanir gera ráð fyrir og óvæntar vendingar í alþjóðamálum geta haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar. Hvernig hefur þróun alþjóðamála áhrif á íslensk nýsköpunarfyrirtæki og framtíð þeirra og geta þau með einhverjum hætti varið sig eða jafnvel skapað ný tækifæri? Í þessu samhengi er nærtækt að horft til Bandaríkjanna og þeirra áhrifa sem hækkun innflutningstolla hefur á íslensk nýsköpunarfyrirtæki.

Í lok þingsins veitir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, Nýsköpunarverðlaun Íslands 2025.

Dagskrá*

  • 14:00 – Setning Nýsköpunarþings

    • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra

  • 14:10 – Aðalfyrirlesari

    • Svanhildur Hólm, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum.

  • 14:40 - Einkaleyfisumsóknir íslenskra fyrirtækja 2004 - 2024:

    • Eiríkur Sigurðsson, samskiptasjóri Hugverkastofunnar

  • 14:50 – Ísland í stóru myndinni (Pallborð)

    • Tanya Zarov, aðstoðarforstjóri Alvotech

    • Erla Skúladóttir, stjórnarformaður Lauf Cycles (Nýsköpunarfyrirtæki ársins 2021)

    • Sveinn Sölvason, forstjóri og framkvæmdastjóri Embla Medical

    • Lóa Fatou Einarsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Good Good

  • 15:20 - Afhending Nýsköpunarverðlauna Íslands

    • Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra

Fundarstjóri og stjórnandi pallborðs: Freyr Eyjólfsson

Að lokinni dagskrá verður boðið upp á léttar veitingar.

Skráning á Nýsköpunarþing

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Smelltu hér til að opna streymi í nýjum glugga