Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Nýsköpun og ný tengsl – Selfoss

19. janúar 2026

11:00 til 13:00

Fjölheimar, Tryggvagata 13,

800 Selfoss

KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar HÍ halda opinn kynningarfund á Selfossi í samstarfi við Samtök sunnlenskra sveitafélaga, Háskólafélag Suðurlands og Orkídeu.

DAGSKRÁ:

Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi

KLAK kynnir sín verkefni en félagið heldur úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.

  • Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.

  • Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.

  • Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.

Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.

Fyrir hverja?

Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:

  • eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd

  • eru að stíga sín fyrstu skref

  • eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði

Smelltu hér til að skrá þig á fundinn

Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & Ný Tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.

Facebook viðburður