Nýsköpun og ný tengsl – Húsavík
21. janúar 2026
16:00 til 18:00
Hafnarstétt 1,
640 Húsavík

KLAK – Icelandic Startups, Íslandsstofa, Tækniþróunarsjóður og Vísindagarðar HÍ halda opinn kynningarfund á Húsavík í samstarfi við Hraðið – miðstöð nýsköpunnar og Samtök sveitarfélaga og atvinnuþróunar á Norðurlandi.
DAGSKRÁ:
Fjögur stutt og hnitmiðuð 15 mínútna erindi
KLAK kynnir sín verkefni en félagið heldur úti metnaðarfullri dagskrá árið um kring fyrir einstaklinga með hugmyndir og fyrirtæki í vexti, þátttakendum að kostnaðarlausu.
Tækniþróunarsjóður kynnir styrki fyrir nýsköpunarverkefni – frá hugmynd að markaði.
Íslandsstofa segir frá aðgangi að alþjóðamörkuðum, erlendum fjármögnunartækifærum og hvernig byggja má upp öflugt tengslanet fyrir vöxt fyrirtækja.
Vísindagarðar HÍ kynna stuðningsumhverfi sitt, nýsköpunarsamfélagið Mýrina og uppbyggingu nýs djúptækniseturs.
Að loknum erindum gefst góður tími fyrir spurningar, samtal og tengslamyndun. Tækifæri til að ræða eigin verkefni, fá ráðgjöf og tengjast beint fulltrúum stofnananna.
Fyrir hverja?
Viðburðurinn er opinn öllum og ókeypis – sérstaklega ætlaður þeim sem:
eru með nýsköpunar- eða viðskiptahugmynd
eru að stíga sín fyrstu skref
eða vilja þróa verkefni sitt áfram og sækja á nýja markaði
Smelltu hér til að skrá þig á fundinn
Viðburðurinn er partur af hringferðinni "Nýsköpun & Ný Tengsl" sem skapar vettvang fyrir samtal, miðlun upplýsinga og tengslamyndun milli frumkvöðla, fyrirtækja og lykilaðila í nýsköpunarumhverfinu.