Norrænn upplýsingafundur um væntanlegt Innovation Fund IF26 Industrial Heat Auction
7. október 2026
08:00 til 10:00
Á netinu

Tengiliðir Nýsköpunarsjóðs ESB (Innovation Fund) á Íslandi, Noregi, Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi standa fyrir sameiginlegum upplýsingafundi á netinu 7. október 2026 frá klukkan 08:00- 10:00 að íslenskum tíma um væntanlegt IF26 Industrial Heat Auction, ásamt sérfræðingum frá framkvæmdastjórn ESB.
Framkvæmdastjórn ESB undirbýr nýtt útboð innan Nýsköpunarsjóðsins sem miðar að því að hraða innleiðingu lausna sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda við framleiðslu og notkun hita í iðnaði.
Fyrirhugað er að allt að 1 milljarður evra verði til ráðstöfunar fyrir verkefni sem draga úr slíkri losun, meðal annars með:
rafvæðingu,
iðnaðarvarmadælum og rafkötlum,
rafviðnáms-, span- og plasmahitun,
endurnýjanlegum hitagjöfum, svo sem jarðhita og sólarvarma,
blönduðum tæknilausnum.
Stuðningur verður veittur í gegnum samkeppnisútboð þar sem verkefni keppa meðal annars á grundvelli kostnaðar við samdrátt í losun CO₂.
Á upplýsingafundinum verður farið yfir fyrirhugað fyrirkomulag útboðsins, styrkhæfar lausnir, hæfniskilyrði, kröfur um hvar í þróunarferlinu verkefni þurfa að vera stödd og umsóknarferlið. Sérfræðingar framkvæmdastjórnar ESB munu einnig svara spurningum þátttakenda.
Viðburðurinn er sérstaklega ætlaður fyrirtækjum í iðnaði, tæknifyrirtækjum, verkefnaþróunaraðilum, orkufrekum fyrirtækjum, orkufyrirtækjum, fjárfestum, fjármálastofnunum og ráðgjöfum.
Dagsetning: 7. október 2026
Tími: 08:00–10:00 að íslenskum tíma
Staðsetning: Á netinu
Þátttaka: Gjaldfrjáls
Skráning og nánari upplýsingar: Heat Auctions
Tengiliður á Íslandi: Katrín Jónsdóttir katrin.jonsdottir@rannis.is