Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Norrænn netviðburður fyrir væntanleg Digital Europe köll

16. apríl 2026

11:00 til 13:00

Netviðburður

Viðburðurinn er tileinkaður væntanlegum Digital Europe köllum og er opinn íslenskum fyrirtækjum, stofnunum og öðrum áhugasömum. Markmiðið er að tengja saman samstarfsaðila á Norðurlöndum og styðja þátttakendur í undirbúningi umsókna fyrir Digital Europe verkefni árin 2026–2027.

Hvað er Digital Europe?

Digital Europe Programme (DEP) er fjármögnunaráætlun ESB sem styður innleiðingu stafrænnar tækni og þróun sameiginlegra evrópskra stafrænnar innviða. Áætlunin einblínir m.a. á gervigreind, örugg gagnakerfi, stafræna færni og stafrænar umbreytingar í atvinnulífi og samfélagi. Hér er því kjörinn vettvangur fyrir íslenska aðila sem vilja taka þátt í öflugum alþjóðlegum samstarfsverkefnum.

Áherslur viðburðarins

Viðburðurinn hefst með stuttri yfirlitskynningu um næstu DEP köll samkvæmt vinnuáætlun 2026–2027, en að því loknu fara fram þrír samhliða umræðuhópar:

  • Gervigreind

  • Heilbrigðismál

  • Stafræn færni

Í umræðuhópunum geta þátttakendur kynnt verkefnahugmyndir eða sérfræðikunnáttu í 3–10 mínútna erindum.

Um er að ræða einstakt tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki, stofnanir, háskóla og sveitarfélög til að mynda ný samstarfstengsl, fá innsýn í það sem er framundan í DEP og hefja undirbúning að samstarfsverkefnum.

Viðburðurinn er skipulagður í samvinnu Rannís og systurstofnana á Norðurlöndum.

Skráning er hafin – tryggðu þér þátttöku

Nánari upplýsingar og skráning

Rannís hvetur alla íslenska aðila sem eru að huga að innleiðingu stafrænna launsa og nýsköpunar til að skrá sig og taka virkan þátt.