Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Námskeið fyrir þátttakendur í evrópskum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum

29. október 2026

09:00 til 11:30

Rannís, Borgartún 30, 3. hæð,

105 Reykjavík

Hefur þú nýlega fengið styrk úr Horizon Europe eða öðru evrópsku samstarfsverkefni?   

Þann 29. október næstkomandi verða sérfræðingar Enterprise Europe Network og Rannís með námskeið fyrir þátttakendur í evrópskum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum .

Á námskeiðinu er farið yfir helstu atriði sem þarf að hafa í huga þegar verkefni hefst og hvernig best er að standa að stjórnun þess frá upphafi til að tryggja farsæla framkvæmd þess. 

Umfjöllunarefni
  • Samningur og helstu skyldur verkefnisaðila 

  • Samstarfssamningur  

  • Fjárhagsstjórnun og kostnaðarbókhald 

  • Starfsmannakostnaður og tímaskráningar 

  • Skýrslugjöf og eftirfylgni verkefna 

  • Vinnupakkar, verkefnastjórnun og ábyrgð 

  • Miðlun niðurstaðna og samskipti 

  • Stuðningur og ráðgjöf frá Rannís á verkefnistímanum 

Námskeiðið er ætlað nýjum þátttakendum í evrópskum rannsókna- og nýsköpunarverkefnum. 

Námskeiðið er ókeypis, fer fram á íslensku og ensku ef þess er óskað. 

Athugið að það er takmarkaður fjöldi sem getur sótt námskeiðið, hámarksfjöldi er 20 manns.

Skrá mig á námskeið