Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Kynningarfundur um fræðslu og ráðgjöf Evrópsku tungumálamiðstöðvarinnar

2. nóvember 2026

15:00 til 15:30

Á netinu (Teams)

Fulltrúar Evrópsku tungumálamiðstöðvarinnar (ECML) á Íslandi, þau Eyjólfur Már Sigurðsson og Miriam Petra Ómarsdóttir Awad hjá Rannís, bjóða til opins kynningarfundar um fræðslu- og ráðgjafartækifæri á vegum ECML 2. nóvember kl. 15:00–15:30 á Teams.

Á fundinum verður farið yfir þau námskeið, ráðgjöf og sérfræðiþjónustu sem í boði eru fyrir tungumálakennara og aðra sérfræðinga á sviði annarsmálsfræða og menntunarfræða. Markmið fræðslunnar er að efla gæði tungumálakennslu, styðja við fagþróun kennara og stuðla að fjölbreyttum kennsluaðferðum í kennslu erlendra tungumála og íslensku sem annars máls.

Hlekkur á kynningarfundinn á Teams

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um fræðsluverkefni hjá ECML fyrir árið 2027. Hægt er að sækja um bæði fræðslu á vegum ECML og verkefni sem unnin eru í samstarfi ECML og Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Í samstarfsverkefnunum er í boði aukinn styrkur sem meðal annars getur nýst til að greiða þóknun innlendra skipuleggjenda og ferðastyrki fyrir þátttakendur utan höfuðborgarsvæðisins.

Umsóknarfrestur er 16. nóvember 2026.

Allar umsóknir fara í gegnum fulltrúa ECML á Íslandi, Eyjólf Má Sigurðsson.

Nánari upplýsingar um fræðsluna og þau tækifæri sem eru í boði má finna á vef ECML: Training and consultancy.