Kynningarfundur á netinu um Nordplus Norrænu tungumálaáætlunina og Horizontal
25. nóvember 2025
14:15 til 15:00
Veffundur
Bæta við í dagatal
Á fundinum verður fjallað um tvær undiráætlanir Nordplus:
Nordplus Norrænu tungumálaáætlunina sem styður verkefni sem efla tungumál Norðurlandanna og norræna menningu.
Nordplus Horizontal sem leggur áherslu á þverfaglegt samstarf milli skólastiga og menntageira, meðal annars í nýsköpunar- og þróunarverkefnum, ráðstefnum og námskeiðum.
Viðburðurinn er opinn öllum áhugasömum en þátttakendur eru beðnir um að skrá sig fyrirfram.
Næsti umsóknarfrestur fyrir verkefnastyrki í Nordplus menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar er 2. febrúar 2026
Nánari upplýsingar: nordplus@rannis.is