Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Kynning á fræðslu og ráðgjöf Miðstöðvar evrópskra tungumála

6. nóvember 2025

15:00 til 16:00

Veröld - hús Vigdísar, Brynjólfsgötu 1, Heimasvæði tngumála 2. hæð,

107

Rannís og Tungumálamiðstöð HÍ standa fyrir kynninu á námskeiðum, vinnustofum og ráðgjöf á vegum Miðstöðvar evrópskra tungumála (European Centre for Modern Languages - ECML).

Miðstöð evrópskra tungumála hefur opnað fyrir umsóknir fyrir Training and Consultancy (TaC) sem eru fræðsluviðburðir og vinnustofur fyrir tungumálakennara og er umsóknarfrestur til 14. nóvember.
Sjá nánar á vefsíðu ECML.

Eyjólfur Már Sigurðsson, forstöðumaður Tungumálamiðstöðvar HÍ og Aðalheiður Jónsdóttir, sviðsstjóri mennta- og menningarsviðs Rannís, munu kynna tækifæri á vegum Miðstöðvar evrópskra tungumála.

European Centre for Modern Languages er stofnun á vegum Evrópuráðsins. Miðstöðin er í Graz í Austurríki og hlutverk hennar er að styðja við tungumálanám og -kennslu í aðildarlöndunum.

Aðildarlönd ECML geta sótt um að fá fræðslu fyrir sérfræðinga á sviði tungumálamenntunar sem löguð er að raunverulegum þörfum og sérstökum aðstæðum í hverju landi. Þannig miðlar ECML þeirri sérfræðiþekkingu sem hefur verið þróuð í verkefnum miðstöðvarinnar beint til aðildarríkjanna.

Sérfræðingar ECML starfa í nánu samstarfi við innlend stjórnvöld og sérfræðinga við mótun og framkvæmd fræðslunnar innan hvers lands svo hægt sé að sníða fræðsluna sérstaklega að þörfum viðkomandi markhóps.