Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Hvar leynast tækifæri fyrir ungt fólk að stunda nám og störf erlendis?

24. september 2026

14:00

Á netinu

Euroguidance og Eurodesk á Íslandi bjóða upp á kynningu á tækifærum sem Rannís býður upp á, á vegum Landskrifstofu Erasmus+ , European Solidarity Corps og Nordplus.

Kynningin er fyrir náms- og starfsráðgjafa, aðra ráðgjafa sem og starfsfólk sem starfar með ungu fólki á aldrinum 14-30 ára.

Kynningin verður þann 24. september kl. 14:00 og fer fram á Teams.

Á kynningunni verður farið yfir þau tækifæri erlendis sem bjóðast í gegnum þær áætlanir sem að Rannís umsýslar. Kynningin er á vegum Eurodesk og Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar (Euroguidance) á Íslandi. Þátttakendur fá tækifæri til að kynnast nánar möguleikum og þeim tækifærium sem styðja ungt fólk í alþjóðlegri þátttöku, námi og starfsreynslu. Starfsfólk mun líka svara spurningum og ræða við þátttakendur.

Skráning á viðburð.