Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Harder, Better, Funded, Stronger - Funding, Founders and Future Tech

28. apríl 2026

15:00 til 16:40

Kristínargata 1, Fenjamýri, Gróska - Hugmyndahús,

102, Reykjavík

Rannís, Tækniþróunarsjóður og Enterprise Europe Network, í samstarfi við sendinefnd Evrópusambandsins á Íslandi, bjóða til hliðarviðburðar í Nýsköpunarvikunni undir yfirskriftinni:

Harder, Better, Funded, Stronger - Funding, Founders and Future Tech

Þetta er viðburður þar sem hugmyndir verða að tækifærum, tengsl myndast og nýjar leiðir opnast fyrir frumkvöðla og fyrirtæki. Með blöndu af innblásnum kynningum, reynslusögum úr nýsköpunarumhverfinu og lifandi tónlistartækni, skapast kraftmikið og skapandi andrúmsloft þar sem framtíðin fær að hljóma.

Á sviðinu mætast fjármögnun, frumkvöðlar og framtíðartækni, en jafnframt verður tónlistin leiðarstef sem bindur viðburðinn saman, þar sem ný tækni og gervigreind opna nýjar víddir í hljóðheimum og upplifun.

Viðburðurinn er kjörið tækifæri til að:

  • Kynna sér stuðning og tækifæri fyrir nýsköpun,

  • heyra reynslusögur,

  • mynda tengsl.

Dagskrá*

  • Harder: Opnunarávarp, Clara Ganslandt, sendiherra ESB á Íslandi

  • Better: Tækifæri, stuðningur og sókn á nýja markaði, Mjöll Waldorff, sérfræðingur hjá Rannís og Enterprise Europe Network

  • Funded: Reynslusaga K01, Arinbjörn Kolbeinsson, meðstofnandi K01

  • Stronger: Reynslusaga Víkonnekt, Safa Jemai, framkvæmdastjóri Víkonnekt

  • Tónlist og tækni: Lifandi innslag, Love Synthesizers, Genki Instruments og fleiri.

Boðið er upp á léttar veitingar í lok viðburðar.

*Dagskrá er birt með fyrirvara um breytingar

Viðburðurinn fer fram á ensku og er opinn öllum, en nauðsynlegt er að skrá sig