Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar - master class námskeið

2. desember - 3. desember 2025

10:00 til 16:00

Hannesarholt, Grundarstígur 1,

101 Reykjavík

Miðstöð stafrænnar nýsköpunar á Íslandi (EDIH) og Enterprise Europe Network á Íslandi standa fyrir "master class" námskeiði í samstarfi við Gate2Growth.

Fyrri dagurinn stendur frá kl. 10-16, en boðið er upp á einstaklingsráðgjöf seinni daginn. Athugið, það er takmarkað pláss í einstaklingsráðgjöfina og verður fundartímum úthlutað í þeirri röð sem fyrirspurnir berast.

Markmið námskeiðsins er að leiðbeina þátttakendum við að þróa öflugt viðskiptamódel, setja fram faglega viðskiptaáætlun og læra að velja réttar fjármögnunaraðferðir. Farið verður yfir hringrásar- og línuleg viðskiptamódel, áskoranir opinberra innkaupa og hvernig fyrirtæki geti sameinað einkafjárfestingu og opinbera styrki.

Sérstök áhersla er lögð á:

  • Hvernig á að laða að fjárfesta

  • Fjárhagsáætlanir og lausafjárgreiningu

  • Helstu ESB-styrki

  • Hvers vegna og hvenær á að taka þátt í alþjóðlegum samstarfsverkefnum

Drög að dagskrá

Þriðjudagur, 2. desember

  • 09.30 Húsið opnar

  • 10.00-12.30 Fjármögnunarlandslagið og hringrásar/línuleg viðskiptamódel, viðskiptaáætlun

  • 12.30-13.00 Hádegismatur

  • 13.00-15.30 Að laða að fjárfesta með sterku viðskiptamódeli, opinberir styrkir / ESB-styrkir, böl eða blessun

Miðvikudagur, 3. desember

  • 09.30 Húsið opnar

  • Einstaklingsráðgjöf, sér skráning og hér gildir fyrstur kemur fyrstur fær.

Leiðbeinandi Uffe Bundgaard-Joergensen, hagfræðingur og forstjóri Gate2Growth er sérfræðingur í fjármögnun nýsköpunarfyrirtækja í Evrópu. Hann er með víðtæka reynslu af stjórnun, rannsóknum, orkumálum, alþjóðlegri ráðgjöf og fjárfestingum.

Námskeiðið fer fram á ensku.

Námsskeiðsgjald: 4.990 kr. Innifalið: Hádegismatur, hressing og öll gögn, þar með talið: EU-verkefnaskýrslan Circular & Linear Business Cases and Public Procurement Challenges. Aðgangur að G2G Business Plan Writer og fjárhagsáætlunarmódúl í 3 mánuði.

Vinsamlegast sendið stutta lýsingu á verkefninu ykkar á ensku við skráningu:


Skráning á - Frá viðskiptahugmynd til fjármögnunar

Námskeiðinu lýkur með einstaklingsráðgjöf þar sem þátttakendur geta fengið markvissa endurgjöf á eigin verkefni. Sérstök skráning er í gegnum netfangið hjá Kolfinnu Tómasdóttur, kolfinna.tomasdottir@rannis.is