Frá hugmynd til framkvæmdar - hádegisfundur um samstarfsverkefni (KA2) Erasmus+
21. janúar 2026
12:30
Kjarvalsstaðir, Flókaötu 24,
Reykjavík

Landskrifstofa Erasmus+ og European Solidarity Corps mun á nýju ári, standa fyrir fjölbreyttum viðburðum þar sem styrktækifæri ársins eru kynnt og umsækjendum veittur stuðningur.
Það er von Landskrifstofu að allir markhópar finni hér viðburð við hæfi og geti fundið þannig stuðning í umsóknarferlinu. Einnig er velkomið að hafa samband við starfsfólk Landskrifstofu.
Hádegisfundur á Kjarvalsstöðum um samstarfsverkefni (KA2). Reyndur verkefnastjóri segir frá reynslu sinni, starfsfólk Landskrifstofunnar fer yfir lykilatriði samstarfsverkefna og síðan munu þátttakendur vinna í sinni hugmynd að verkefni. Súpa og nýbakað brauð í boði í byrjun fundar.
Vinsamlegast skráðu þig á þá fundi og/eða vefstofur sem þú hefur áhuga á.