Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Frá hugmynd að Horizon Europe umsókn, hagnýtt námskeið í Hannesarholti

28. október 2026

09:00 til 17:00

Hannesarholt, Grundarstígur 10,

101 Reykjavík

Rannís, í samstarfi við GREENET stendur fyrir heils dags námskeiði í Horizon Europe umsóknargerð í Hannesarholti 28. október frá 09:00 - 17:00.

Námskeiðið fer fram á ensku og er eingöngu ætlað þeim sem hyggjast sækja um styrki innan klasa 5 í Horizon Europe: Loftslag, orka og samgöngur.

Leiðbeinendur eru Sanna Alaranta frá Luxinnovation í Lúxemborg og Maria Habicht frá eistneska rannsóknaráðinu. Báðar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf og stuðningi við umsækjendur um Evrópustyrki.

Á námskeiðinu er farið yfir helstu þætti umsóknarferlisins, frá því að lesa og túlka kalltexta til þess að móta verkefni og byggja upp umsókn.

Rík áhersla er lögð á verklegar æfingar og hópvinnu.

Meðal viðfangsefna eru:

  • Kynning á Horizon Europe og þátttökureglum.

  • Vinnuáætlunin: hvernig greina má lykilatriði, kortleggja nauðsynlega sérþekkingu og byggja upp öflugan samstarfshóp.

  • Fjármögnunarreglur.

  • Umsóknarsniðmátið og notkun þess.

  • Matsviðmið umsókna.

  • Þróun og uppbygging verkefna.

  • Hvernig skrifa á áhrifakafla umsóknar.

  • Lykilatriði í áhættustýringu.

Þátttakendur geta einnig búist við skemmtilegum uppákomum yfir daginn. Námskeiðinu lýkur með sameiginlegri upprifjun á því efni sem unnið er með.

Námskeiðið er ætlað byrjendum í Horizon Europe umsóknargerð.

Sætafjöldi er takmarkaður og Rannís áskilur sér rétt til að forgangsraða skráningum með hliðsjón af fjölda þátttakenda frá hverri stofnun. Þeir sem skrá sig fá staðfestingu á því hvort þeim býðst sæti.

Þátttaka er ókeypis og morgunkaffi og hádegisverður eru innifalin.

Skráning á námskeiðið

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Bjargmundsdóttir, kolbrun@rannis.is sími: 515 5814.

Um GREENET:

GREENET er alþjóðlegt samstarfsnet landstengiliða klasa 5 í Horizon Europe, rannsókna- og nýsköpunaráætlun Evrópusambandsins. Markmið GREENET er að efla samstarf landstengiliða og bæta stuðning við umsækjendur með því að kynna fjármögnunartækifæri, skipuleggja námskeið og samstarfsviðburði og stuðla að fjölbreyttari þátttöku í alþjóðlegum samstarfshópum.

Viltu fylgjast með málefnum klasa 5 í Horizon Europe?

Gerast áskrifandi að fréttabréfi GREENET