Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Fögnum Erasmus+ dögunum 13.-18. október með stæl!

13. október - 18. október 2025

Erasmus dagar 2025 fara fram dagana 13. - 18. október. Um er að ræða sex daga tímabil þar sem athygli er vakin á Erasmus+ áætluninni og tækifærum hennar með samstilltu átaki. Landskrifstofan hvetur styrkhafa til að nota tækifærið og deila framlagi sínu og reynslu.

Hvernig getið þið tekið þátt? Hér eru nokkrar hugmyndir:

  • Skrifið grein eða pistil um ykkar Erasmus+ reynslu

  • Verið sýnileg á samfélagsmiðlum með myndefni og sögum með myllumerkinu #ErasmusDays

  • Skipuleggið listsýningu, ljósmyndavegg eða kynningu

  • Haldið Erasmus+ dag í skólanum þínum eða stofnun – við komum gjarnan og segjum frá áætluninni ef óskað er eftir


Við hvetjum ykkur til að skipuleggja haustið með Erasmus dagana í huga og treystum á að í sameiningu getum við gert Erasmus+ hátt undir höfði og sýnt hversu fjölbreytileg og áhrifamikil þátttaka í henni getur verið.