Færni, framtíð og Evrópa: Stefnumótun og tækifæri Íslands
6. maí 2026
13:00 til 14:30
Vefstofa

Á vefstofunni verður fjallað um stöðu og þróun færni á íslenskum vinnumarkaði, hvernig hún tengist evrópskum áherslum og hvaða tækifæri felast í auknu samstarfi þjóða á þessu sviði.
Sérstök áhersla verður lögð á Europass og mikilvægi þess að skrásetja upplýsingar um færni, þar á meðal hvernig einstaklingar og stofnanir geta nýtt sér slík verkfæri til að gera hæfni sýnilegri og bæta hreyfanleika á vinnumarkaði. Einnig verður fjallað um önnur stefnumótandi verkefni í Erasmus+ í færni og atvinnumálum, eins og Epale og Eurogudiance.
Vefstofan er framhald af ársfundi Erasmus+ , sem fór fram þann 5. mars undir yfirskriftinni Færni til framtíðar. Hún er ætluð öllum sem hafa áhuga á menntamálum, vinnumarkaði, stefnumótun og alþjóðlegu samstarfi.
Dagskrá:
Kynning á Bandalagi um færni (e. Union of Skills)
- Skúli LeifssonFærni á íslenskum vinnumarkaði
- Maj-Britt Hjördís Briem, lögmaður og sérfræðingur í menntamálum hjá Samtökum atvinnulífsins.Kynning á Europass og umræður um skrásetningu upplýsinga
- Tanja Teresa Leifsdóttir