Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Evrópudagurinn 2026

30. maí 2026

11:00 til 14:00

Sæmundargata 11, Norræna húsið,

102, Reykjavík

Langar þig að upplifa Evrópu á einum degi með fjölskyldunni?


Komdu og fagnaðu Evrópudeginum í Norræna Húsinu á laugardaginn milli klukkan 11:00 og 14:00.

Þemað í ár er: Okkar Evrópa, okkar framtíð. Á þessum degi fögnum við menningarlegri fjölbreytni og unga fólkinu.

Starfsfólk Rannís og Landskrifstofu Erasmus+ verður á staðnum og veitir upplýsingar um tækifæri fyrir fólk, fyrirtæki og stofnanir sem í boði eru í gegnum þær evrópuáætlanir sem eru í umsjá Rannís.

Þetta verður dagur þar sem fjölskyldur, vinir og nágrannar koma saman til þess að njóta þess besta sem Evrópa hefur upp á að bjóða.

Í boði verður fjölbreytt afþreying fyrir alla aldurshópa. Þar má nefna andlitsmálningu, leiki og föndur fyrir börnin.

Að auki verður tækifæri til þess að heimsækja bása fjölda meðlimaríkja Evrópusambandsins þar sem hægt verður að kynnast einstökum hefðum þeirra, bragðheimi og sögum. Þá munu gestir fá að njóta lifandi tónlistar allan daginn.

Öll velkomin.

Fréttin á vefsíðu Sendinefndar ESB á Íslandi

Facebook viðburður