Eru evrópskir háskólar í fararbroddi? - ávinningur af þátttöku íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum
14. október 2025
13:00
Sæmundargata 11, Norræna húsið,
102

Málþing, 14. október kl. 13.00 í Norræna húsinu, um áskoranir og ávinning háskólanetanna fyrir nemendur, starfsfólk, stöðu háskólanna og samfélagið.
Innan Evrópu er nú lögð rík áhersla á dýpra samstarf háskóla en áður hefur þekkst með fjármögnun evrópskra háskólaneta. Netin eiga að styðja við nýsköpun í kennslu og rannsóknum til að mæta örum samfélagsbreytingum og fjölþættum áskorunum nútímans. Háskólum í netum er þannig ætlað að ýta undir bæði sjálfbæra þróun til framtíðar og samkeppnishæfni Evrópu.
Hvernig er hægt að tryggja að háskólar standi við þessi áform? Hvað gengur vel og hvað mætti betur fara í starfi íslenskra háskóla í netum og í samstarfi þeirra við ýmsa aðila í samfélaginu?
Fjórir íslenskir háskólar eru hver um sig í einu af 65 háskólanetum í Evrópu. Háskólarnir boða til málþings um ávinning og áskoranir háskólanetanna fyrir nemendur, starfsfólk, stöðu háskólanna og samfélagið. Málþingið er haldið í samstarfi við Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið.
Dagskrá:
Kl. 12.30 Húsið opnar – léttur hádegisverður í boði
Kl. 13.00-14.30:
Ávarp menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra – Logi Einarsson
Ávarp sendiherra ESB á Íslandi – Clara Ganslandt
Pallborð: Ávinningur og áskoranir íslenskra háskóla í evrópskum háskólanetum
Margrét Jónsdóttir Njarðvík, rektor Háskólans á Bifröst
Ragnhildur Helgadóttir, rektor Háskólans í Reykjavík
Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands
Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands
Ávarp: Þátttaka stúdenta í evrópskum háskólanetum
Lísa Margrét Gunnarsdóttir, forseti Landssamtaka íslenskra stúdenta
Pallborð: Nýsköpun evrópskra háskólaneta fyrir þróun náms, vísinda og atvinnutækifæra
Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni HR
Einar Hreinsson, gæðastjóri Háskólans á Bifröst
Jón Grétar Sigurjónsson, kennslustjóri LbhÍ
Magnús Þór Torfason – sviðsforseti félagsvísindasviðs HÍ
Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Klak - Icelandic Startups
Vinsamlega skráið þátttöku með því að fylla út skráningarformið. Athugið að viðburðurinn fer fram á íslensku.