Erasmus+ fyrir alls konar fólk
11. nóvember 2026
14:00 til 15:00
Vefstofa

Hvernig getum við stutt fleiri til þátttöku í Erasmus+?
Erasmus+ býður upp á tækifæri til að efla færni, auka sjálfstraust, víkka sjóndeildarhringinn og öðlast reynslu sem nýtist bæði í námi og starfi.
Á vefstofunni verður fjallað um inngildingu í Erasmus+ og þá styrkjamöguleika sem standa til boða fyrir þátttakendur sem kunna að mæta hindrunum við þátttöku.
Kynnt verður hvernig inngildingarstyrkir geta auðveldað þátttöku og gert fleirum kleift að njóta alþjóðlegrar náms- og starfsreynslu.
Vefstofan er ætluð náms- og starfsráðgjöfum og öðrum sem styðja einstaklinga við að nýta sér tækifæri til náms og færniþróunar í Evrópu.
Kynningin er á vegum Euroguidance, Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar á Íslandi, og Landskrifstofu Erasmus+