eTwinning fyrir framhaldsskóla
12. mars 2026
15:00 til 16:00
Vefstofa

Á þessari vefstofu verður fjallað um hvernig framhaldsskólakennarar geta nýtt eTwinning til að tengja saman námsgreinar, tungumál og alþjóðlega vitund nemenda. Verkefni með jafnöldrum víða um Evrópu efla samskiptahæfni, gagnrýna hugsun og skapandi starf. Farið verður yfir skráningarferli, samstarfsleit og þróun verkefna.
Leiðbeinandi: Sigríður Halldóra Pálsdóttir
Nánari upplýsingar og skráning: https://nymennt.hi.is/is/etwinning-fyrir-framhaldsskola
eTwinning á Íslandi heldur nýja vefstofuröð í samstarfi við Nýmennt við Háskóla Íslands. Vefstofurnar eru sérstaklega ætlaðar kennurum á öllum skólastigum sem vilja kynnast því hvernig eTwinning getur auðgað kennslu, stutt skapandi verkefnavinnu og opnað dyr að alþjóðlegu samstarfi í gegnum öruggt stafrænt umhverfi.
Hver vefstofa er leidd af reyndum eTwinning-sendiherra sem kynnir hvernig finna má samstarfsaðila í Evrópu og hvernig hefja má verkefni sem tengja saman nám, leik, tungumál og menningu.
Fyrir vefstofuna sendum við út upplýsingar um hvernig á að skrá sig í eTwinning.
Vefstofurnar eru ókeypis, aðgengilegar öllum kennurum og henta bæði þeim sem eru að taka sín fyrstu skref í eTwinning og þeim sem vilja fá innblástur og þróa nýjar hugmyndir.