Vísindavaka er á morgun! Hlökkum til að sjá þig
25. september 2026
Á Vísindavöku fögnum við vísindum og þökkum vísindafólki fyrir ómetanlegt starf. Áhugi og þátttaka almennings gera daginn einstakan og minna á mikilvægi vísinda fyrir samfélagið allt.

Heill heimur á Vísindavöku!
Viltu kynnast ísköldum leyndardómum jöklanna?
Handleika loftsteina?
Sjá lifandi maura?
Prófa að sauma sár?
Skoða blóðfrumur og ýmsar lífverur, föndra glitrandi fjörudýr?
Setjast í kappakstursbíl?
Fræðast um sjúkraflug?
Spyrja spurninga um himinhvolfið?
Ef þér finnst þér gaman að fikta og prófa alls konar hluti og fræðast um hvernig allt virkar þá skaltu koma á Vísindavöku því þetta eru einungis nokkur dæmi um þau verkefni sem verða kynnt á henni.
Á Vísindavöku gefst almenningi kostur á að hitta okkar fremsta vísindafólk og fræðast um rannsóknir og nýsköpun á öllum fræðasviðum á fjölmörgum sýningarbásum.
Gestir fá að skoða og prófa ýmis tæki og tól sem notuð eru við rannsóknir, kynnast ýmsum afurðum og spjalla við vísindafólkið sjálft um hvernig er að starfa að rannsóknum og nýsköpun. Lögð er áhersla á lifandi vísindamiðlun og virka þátttöku gesta, og eru börn og ungmenni sérstaklega boðin velkomin á Vísindavöku.
Spennandi opnunaratriði, viðurkenning fyrir vísindamiðlun og leiðsögn á pólsku og táknmáli.
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra afhendir viðurkenningu Rannís fyrir vísindamiðlun við opnun Vísindavöku kl. 12:30. Ekki má gleyma spennandi opnunaratriði þar sem Smaragda Luchia Sarana mun keyra Vísindavöku í gang með látum, en hún er einn af fremstu ungu vísindamiðlurum Evrópu og ein af stjörnum vísindaþáttanna Rakett69 í Eistlandi.
Opnunardagskráin verður táknmálstúlkuð og leiðsögn á táknmáli um sýningarsvæðið í boði.
Klukkan 14:00 verður nýr liður í dagskrá Vísindavöku en þá verður boðið upp á leiðsögn um svæðið á pólsku.