Fara beint í efnið
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Vertu með í að móta næstu ungmennastefnu ESB

8. maí 2026

Nú er rétti tíminn til að hafa áhrif á nýja ungmennastefnu eftir 2027 sem Evrópusambandið vinnur nú að. Landskrifstofa Erasmus+ á Íslandi hvetur íslensk ungmenni, félagasamtök og fagfólk í æskulýðsstarfi til að taka þátt í samráði um nýju stefnuna.

Ungmennastefna ESB hefur raunveruleg áhrif á forgangsröðun í málefnum ungs fólks, allt frá þátttöku í samfélaginu og lýðræði til menntunar, vinnumarkaðar og vellíðunar. Til að ný stefna endurspegli raunverulegar áskoranir dagsins í dag er mikilvægt að raddir sem flestra heyrist.

Ísland tekur fullan þátt í æskulýðssamstarfi Evrópu í gegnum Erasmus+. Áherslur og fjármögnun Erasmus+ eru mótuð af stefnumótun í málaflokknum og því hefur stefnan bein áhrif á íslensk ungmenni sem taka þátt í Erasmus+ verkefnum, félagasamtök, sveitarfélög og stofnanir sem vinna að æskulýðsstarf og fagfólk sem sækir um styrki og tekur þátt í evrópsku samstarfi.
Mikilvægt er að íslenskum sjónarmiðum sé komið á framfæri við mótun stefnunnar til að tryggja að aðstæður smárra ríkja og dreifðra samfélaga endurspeglist í framtíðarsýn Evrópu í æskulýðsmálum.

Samráðið er öllum opið og stendur til 16. júlí 2026. Þar gefst tækifæri til að deila hugmyndum og reynslu sem geta mótað stefnu sem snertir milljónir ungs fólks víðs vegar um Evrópu næsta áratuginn. Við hvetjum öll til að taka þátt og deila sinn sýn því sterk ungmennastefna byggir á fjölbreyttum röddum og raunverulegri þátttöku.

Taka þátt í samráði