Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða
Rannsóknamiðstöð Íslands Forsíða

Rannsóknamiðstöð Íslands

Úthlutun úr Menntarannsóknasjóði

18. febrúar 2026

Mennta- og barnamálaráðherra hefur úthlutað styrkjum úr Menntarannsóknarsjóði. Sótt var um rúmar 385 m.kr. og hlutu fimm rannsóknarverkefni styrk að heildarupphæð 148,5 m.kr.

Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Úthlutunarnefnd skipuð fulltrúum mennta- og barnamálaráðuneytis, Kennarasambands Íslands, Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samstarfsnefndar háskólastigsins mat umsóknir og gerði tillögu til mennta- og barnamálaráðherra um styrki.

Samkvæmt ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra hljóta eftirfarandi verkefni styrk að upphæð 29,7 m.kr. hvert:

  • Guðrún Ragnarsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf: Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum.

  • Hannes Ottósson, menntavísindasvið, HÍ: Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara.

  • Sara Margrét Ólafsdóttir, menntavísindasvið, HÍ: Stafræn tækni í lífi barna (STÍL).

  • Eva Harðardóttir, menntavísindasvið, HÍ: Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.

  • Valgerður S. Bjarnadóttir, menntavísindasvið, HÍ: Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi.

Birt með fyrirvara um innsláttarvillur.

Styrkupphæð getur breyst við samningagerð.

Heimasíða Menntarannsóknasjóðs